Demants hliðarborð - $119
| Geomítískar skálar - $4, 15 cm (6") |
Sæll langt síðan síðast! Enda bara búin að vera í prófum og ekkert náð að tríta mig við blogg. Rakst á um daginn soldið áhugavert inná Urban Outfitters síðunni en ég hafði amk aldrei tekið eftir að þau eru líka með hluti fyrir heimilið. Sem sagt Apartment en þar er hægt að finna allskonar sniðugt dót og mjög flottum vörum. Þau eru með svaka úrval allt frá litlu símadóteríi og myndavélar til húsgagna. Ætla að bomba inn nokkrum hlutum sem heilluðu mig.
0 Comments
Vá hvað tíminn líður hratt! Búið að vera svo mikið að gera að ég hef ekki komist í að blogga en hér kemur eitt rjúkandi heitt. Mér finnst svona demanta víra mynstur mjög flott, gefur smá svona iðnaðartilfinningu. Mest megnis eru þetta ljósin sem ég er hrifin af en það er margt annað sniðugt líka til og sumt sem hægt er að búa til sjálf/ur. En ég læt bara myndaflóðið byrja: Þessi ljósakróna er frá Bloomingville hann kemur bæði í svörtu og kopar (55x35cm) V: Skemmtilegt DIY þar sem notað er svart teip til þess að búa til mynstur fyrir höfuðgafl - Mjög nett
H: Hérna eru sogrör og blómavír notuð til að fá þessa flottu útkomu, meira hér. Hver þekkir ekki til litríku hnífanna sem hafa verið að slá í gegn uppá síðkastið. Já auðvitað langar mig í þannig líka, helst alla í sitthvorum lit. Þeir sem hafa verið seldir hér á landi eru flestir frá Pure Komachi 2 en held að það séu líka einhverjir frá Taylor Eye Witness sem er ekki alveg jafn gott merki. Ég er samt svo "picky" þegar kemur að því hvort að þessir hnífar eru með einhver gæði yfirleitt þar sem allir virðast vera að selja þessa blessuðu hnífa annað hvort á mjög lágu verði eða þá á svona verði eins og maður heldur að þeir eiga að kosta en veit samt ekki alveg 100% hvort gæðin standast verðið svo veit maður ekkert hvort að húðin flagni af stálinu og svo framvegis. Þannig að ef ég finn flotta litaða hnífa úr keramík efni væri það draumur. Svo má ekki gleyma alveg svörtu flottu (meira að neðan)... Ég er mjög hrifin af bláu enda uppáhaldsliturinn minn. Mér finnst litaðir veggir alveg poppa uppá herbergi þannig þegar ég málaði herbergið mitt fyrir löngu vildi ég hafa einn vegg bláann og einn svartann sem eru alveg pörfect litir fyrir hvaða herbergi sem er í húsinu að mínu mati sitt í hvoru lagi eða saman.
Það er sagt að blár litur hafi róandi áhrif og auki styrk. Svarti liturinn er sagður vera haldinn ákveðinni leyndardómi (e. mistery) og veita manni styrk en of mikið af svörtu getur verið niðurdrepandi. Svo það er kannski gott fyrir mig að vera með bláann lit í herberginu þegar maður er að stressa sig yfir próf eða eitthvað annað hehe :) Ég rakst á mjög flott DIY á Pinterest fyrir stuttu og hef ekki hætt að hugsa um það, langar svo að prófa þetta einhverntímann. Þetta á að vera mjög auðvelt og er mjög flott að mínu mati. Hvað er ég nú að babbla um jú auðvitað þennann fallega marmara-bakka sem þið sjáið hér að neðan:
|
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|