Hver þekkir ekki til litríku hnífanna sem hafa verið að slá í gegn uppá síðkastið. Já auðvitað langar mig í þannig líka, helst alla í sitthvorum lit. Þeir sem hafa verið seldir hér á landi eru flestir frá Pure Komachi 2 en held að það séu líka einhverjir frá Taylor Eye Witness sem er ekki alveg jafn gott merki.
Ég er samt svo "picky" þegar kemur að því hvort að þessir hnífar eru með einhver gæði yfirleitt þar sem allir virðast vera að selja þessa blessuðu hnífa annað hvort á mjög lágu verði eða þá á svona verði eins og maður heldur að þeir eiga að kosta en veit samt ekki alveg 100% hvort gæðin standast verðið svo veit maður ekkert hvort að húðin flagni af stálinu og svo framvegis. Þannig að ef ég finn flotta litaða hnífa úr keramík efni væri það draumur. Svo má ekki gleyma alveg svörtu flottu (meira að neðan)...

Það er annað hvort að vera með alla í mismunandi lit eða alla í alveg svörtum lit það er líka mjög flott að mínu mati. Þessir sem eru hér að neðan eru flestir gerðir úr keramík efni sem er það besta sem maður getur hugsað sér þegar maður er með hnífa. Keramik er mjög hart efni, þess vegna þarf því næstum aldrei að brýna þá.
Nú er bara spurning hvað verður fyrir valinu þessir fersku tónar frá lituðu hnífunum eða klassískt look frá þeim svörtu.
Man þegar ég stakk uppá því að fá hníf/a í jólagjöf við mömmu og hún harðneitaði því, því það á víst að fylgja einhver ógæfa ef maður fær hníf í gjöf. Það er víst þannig að ef maður fær eggvopn á maður í hættu á að það skerist á vináttuna milli gefanda og þyggjanda þannig að ef maður fær eggvopn að gjöf á maður að gefa krónu til baka fyrir hvern hníf til að "borga upp" fyrir þá. Haha kannski smá steikt en fyrir hjátrúafulla er þetta víst rétta leiðin.