Núna er rétti tíminn til þess að lífga aðeins upp á heimilið með grænum plöntum þar sem það er orðið svo grátt úti og kalt. Aðeins of snemmt fyrir jólaskrautið að mínu mati og því er fullkomið að finna gamlar krukkur eða draga fram flotta vasa og potta.
0 Comments
Æjj þetta eru svona dagar þar sem maður vill bara vera uppí rúmmi að gera ekki neitt nema hlusta á rigninguna vera undir kosý teppi og sötra á kakó... jafnvel splæsa í kertaljós og stóra peysu.
Svo ég sá þessa peysu á Vero Moda facebook síðunni og ég kolféll fyrir henni. Hef lengi langað í svona oversized peysu sem er mjög kósý. Efnið í peysunni er svo mjúkt! Hef ekki farið úr henni síðan ég keypti hana í dag haha aðeins of ljúft líf. Hún kom líka í ljósgráu en mig langaði meira í svarta. Er svo hrifin af stórum peysum og svo skinny buxum eða leggins við.
Var allt í einu í voða hvítum fílingi og haustlegum, kannski af því að skólinn fer að byrja bráðum...
|
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|