Svona rúður passa fullkomlega inn í eldhúsið eða svefnherbergið þar sem þær gefa svo hreint yfirbragð.
Mér finnst mjóar svartar línur á hvítum bakgrunni vera rosalega stílhreint, þetta rúðustrika look. Maður þarf samt að passa að þetta minni mann ekki of mikið á stærðfræðitímana í denn.
Svona rúður passa fullkomlega inn í eldhúsið eða svefnherbergið þar sem þær gefa svo hreint yfirbragð.
0 Comments
Rakst á þessa flottu og litlu íbúð í Gautaborg, Svíþjóð. Íbúðin stækkar helling með því að hafa veggina og gólfin hvít. Smeg ísskápurinn kemur mjög vel út í eldhúsinu sem er bjart og stílhreint. Myndi segja að eldhúsið væri flottasta herbergið og kryddplönturnar lífga mikið uppá rýmið.
Mæli með að kíkja á instagram hjá henni Nina Holst a.k.a. stylizimoblog en hún er mjög dugleg við að birta fallegar myndir af heimilum. Ef að instagrammið hennar er ekki nóg getið þið séð fleirri myndir á myndablogginu henna :) enjoy!
Sæll langt síðan síðast! Enda bara búin að vera í prófum og ekkert náð að tríta mig við blogg. Rakst á um daginn soldið áhugavert inná Urban Outfitters síðunni en ég hafði amk aldrei tekið eftir að þau eru líka með hluti fyrir heimilið. Sem sagt Apartment en þar er hægt að finna allskonar sniðugt dót og mjög flottum vörum. Þau eru með svaka úrval allt frá litlu símadóteríi og myndavélar til húsgagna. Ætla að bomba inn nokkrum hlutum sem heilluðu mig.
Vörurnar úr H&M home eru bæði flottar og ekki dýrar. Eina vandamálið er bara að manni langar alltaf í allt of margt. Valdi nokkrar vörur úr nokkrum flokkunum þeirra til að sýna ykkur hvað er í boði. Eina vandamálið er bara að H&M er ekki á Íslandi og maður er ekki beint að fara flytja á milli landa brothætta hluti en á meðan má maður skoða. Gler krukka á $9.95 (uþb. 1125 kr) eru líka með tannburstaglas með sömu áferðinni á $4.95 Postulín krukka, $14.95, hún er ca. 12 cm á þvermáli og 11 cm á hæð. Mynstrið minnir má smá á Bloomingville.
Ég kolféll fyrir litnum light blue fyrir löngu frá Iittala en síðan þá hef ég keypt mér einn vasa frá þeim og fengið Mariskál frá þeim í þeirri lit. Skálina fékk ég frá Gulla í afmælisgjöf. Síðan rákumst við tvö á flöskuna í Rúmfatalagerinum ekki fyrir löngu síðan og var ekkert annað til boða en að skella sér á hana þar sem hún var á kjaraverði. Boxin eru frá Ferm Living en ég gaf sjálfum mér þau í jólagjöf á enn eftir að finna notagildi fyrir þau en það kemur allt í ljós seinna. Voru bara of flott til að kaupa ekki. |
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|