Þannig ég ákvað að skella mér á forútsölu Epal í gær mætti rétt fyrir opnun en greinilega á réttum tíma því að allt í einu var komin ekkert smá löng röð inn í búðina. Þannig ég náði að "hlaupa" inn og skoða svona allt ca áður en það kláraðist. Það var alveg greinilegt að Iittala var mjög vinsælur staður til að kíkja á. Ég náði einmitt að næla mér í Alvar Aalto kertastjaka í mínum uppáhaldslit Light Blue og svo Mariskál 12 cm í Water Green. Einnig keypti ég mér hvítan Krumma eftir Ingibjörgu Hönnu.
0 Comments
Var allt í einu í voða hvítum fílingi og haustlegum, kannski af því að skólinn fer að byrja bráðum...
Jæja hefst hin árlega undirbúningur fyrir skólann. Svo sem fínt að komast í rútínu aftur þótt að það muni taka smá tíma að vakna snemma á morgnana aftur haha. Mér finnst alltaf jafn gaman að fara í Söstrene Grene til að finna aðeins öðruvísi skóladót. Finna eitthvað smá sem poppar uppá þessar venjulegu bækur sem maður þarf alltaf að kaupa.
Fór í smá göngutúr í gær með Gulla niður Laugaveginn. Endaði með því að ég fór heim með þessi fallegu glös og viskustykki frá Fakó Verslun. Þessi glös eru alveg pörfect fyrir boozt og svala sumardrykki, þótt að sumarið sé nú eiginlega búið.
Hey vissuði að Iittala hefur ákveðið að bæta við bjórglas í Essence línuna þar sem það var svo mikil eftirspurn eftir því? Þetta verður þá eina glasið í línunni sem verður ekki með stilk sem er í sömu hæð og hinir, fyrir utan vatnsglasið. Held samt að glasið myndi frekar vera notað undir eitthvað annað á mínu heimili haha. Læt fylgja með mynd af glasinu sem á að koma í haust. Hérna sjáum við þá held ég öll glösin ef ég man rétt.
Hættulegt að fara skoða H&M þegar maður er fastur á klakanum. Núna eru A/W fötin að koma í verslanir og margt ekkert smá flott að mínu mati. Tók saman nokkur föt sem að heilluðu mig:
|
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|