Ferm Living var í dag að kynna nýjustu hlutina í úr þeirra smiðju fyrir vor/sumar 2014 og hvílík litadýrð og fegurð það var. Ég er mjög hrifin af Ferm Living en þau eru alltaf með svo áhugaverð form og litasamsetningar. Ég er veik fyrir grafískt mynstur sérstaklega svart og hvítt og þá kemur Ferm Living sterkt inn. Setti nokkrar myndir úr nýju línunni þeirra hérna fyrir neðan:
Karfan/Borðið hérna fyrir ofan hefur lengi verið í uppáhaldi en ég er staðföst í því að ég ætla að eignast svona körfu (auðvitað svarta) einhverntíman í nánustu framtíð ;) Mér finnst líka blái dúkurinn mjög töff næstum svona eins og einhver hefur tússað hann bláann. Ekki það að ég myndi nenna því nokkurn tíman. |