Rakst á þessa flottu og litlu íbúð í Gautaborg, Svíþjóð. Íbúðin stækkar helling með því að hafa veggina og gólfin hvít. Smeg ísskápurinn kemur mjög vel út í eldhúsinu sem er bjart og stílhreint. Myndi segja að eldhúsið væri flottasta herbergið og kryddplönturnar lífga mikið uppá rýmið.
0 Comments
Var allt í einu í voða hvítum fílingi og haustlegum, kannski af því að skólinn fer að byrja bráðum...
Þarf að splæsa mér í svona K bolla núna í sumar. Maður verður að vera góð við sjálfan sig stundum líka. Ekki það að ég sé það ekki nú þegar haha. Eina vandamálið er að K er oft búið þar sem margir kaupa sér þannig þar sem þau túlka það þá sem Kaffi og svo er líka T vinsælt fyrir Te.
Smá innlit inn í heimili hjá innanhússarkitektinum Susanna Vento. En hún á ekkert smá flott heimili og á mikið af flottum hönnunarvörum. Vildi helst sýna ykkur eldhúsið hennar og borðstofuna en það er mjög fallegur einfaldleiki sem spilar skemmtilega á milli þessarra herbergja. Það gæti samt líka bara verið af því að ég er svo veik fyrir svörtu og hvítu saman.
Ég rakst á mjög flott DIY á Pinterest fyrir stuttu og hef ekki hætt að hugsa um það, langar svo að prófa þetta einhverntímann. Þetta á að vera mjög auðvelt og er mjög flott að mínu mati. Hvað er ég nú að babbla um jú auðvitað þennann fallega marmara-bakka sem þið sjáið hér að neðan:
Ferm Living var í dag að kynna nýjustu hlutina í úr þeirra smiðju fyrir vor/sumar 2014 og hvílík litadýrð og fegurð það var. Ég er mjög hrifin af Ferm Living en þau eru alltaf með svo áhugaverð form og litasamsetningar. Ég er veik fyrir grafískt mynstur sérstaklega svart og hvítt og þá kemur Ferm Living sterkt inn. Setti nokkrar myndir úr nýju línunni þeirra hérna fyrir neðan:
|
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|