Um mig
Hæhæ,
Ég heiti Kristín Óskarsdóttir og er nemi við Háskóla Íslands í Iðnaðarverkfræði. Ég er fædd árið 1992 í Lundi í Svíþjóð en hef átt heima á Íslandi frá árinu 2000. Hef mikinn áhuga á hönnun og öllu sem því fylgir. Mætti segja að ég væri með svoldið scandinaviskan stíl en líka bara voða blandað. Þessi síða er aðallega gerð fyrir allskonar hugleiðingar fyrir framtíðina og hvernig ég væri til að sjá mitt eigið heimili - einskonar nýársheiti fyrir árið 2014 að prófa eitthvað nýtt og fara út fyrir þægindarhringinn. Vonandi njótið þið þess að skoða hvernig þetta þróast allt saman :) Ekki hika við að hafa samband ef þið viljið. |