Vá hvað tíminn líður hratt! Búið að vera svo mikið að gera að ég hef ekki komist í að blogga en hér kemur eitt rjúkandi heitt. Mér finnst svona demanta víra mynstur mjög flott, gefur smá svona iðnaðartilfinningu. Mest megnis eru þetta ljósin sem ég er hrifin af en það er margt annað sniðugt líka til og sumt sem hægt er að búa til sjálf/ur. En ég læt bara myndaflóðið byrja:
Þessi ljósakróna er frá Bloomingville hann kemur bæði í svörtu og kopar (55x35cm)
V: Skemmtilegt DIY þar sem notað er svart teip til þess að búa til mynstur fyrir höfuðgafl - Mjög nett
H: Hérna eru sogrör og blómavír notuð til að fá þessa flottu útkomu, meira hér.
H: Hérna eru sogrör og blómavír notuð til að fá þessa flottu útkomu, meira hér.
Uppi: Þessi heita Work Lamp og eru frá Designhouse Stockholm, líka til í silfur&gull, myndi samt ekki láta smærðina plata ykkur því að sá gullitaði kostar t.d. 35 þús. H: Þessi skál er frá BoConcept accessories línunni. |
Þetta æðislega ljós er frá Globen og heitir auðvitað Diamond
Enda þetta á þessari óvenjulegri ljósaperu