- Marmara flís (eða þá einhverja aðra tegund ef það heillar frekar)
- Handföng
- Svona litla púða til að rispa ekki borð
- Sterkt lím helst svona iðnaðarlím því það þarf að vera mjög sterkt
- Reglustriku og blýant
Svo það fyrsta sem þarf að gera er að:
- Festa púðana undir flísina, einn í hvert horn
- Merkja hvar þú vilt hafa handföngin svo þau eru á saman stað
- Líma þessar elskur niður, muna að þurka í burtu extra lím sem lekur undan
- BÍÐA! bara eins lengi og þið getið, helst 2 daga til að límið sé alveg örugglega orðið hart því þið viljið ekki að handföngin detti af
Maður verður samt að muna að handföngin eru nú bara límd á þannig það er ekki beint gott að vera að setja neinn mikinn auka þunga á brettið og bera út um allt heldur er þetta meira hugsað sem skraut.
Annað skemmtilegt sem hægt er að gera með flísar er að nota þá undir glös.