Gleðilegt sumar! Það er greinilega að koma sumar þar sem ég var akkúrat að byrja að hnerra, hver elskar ekki frjókornaofnæmi? En ég læt mig dreyma um sumar og sól á meðan ég reyni að læra...
0 Comments
Ef einhverjum vantar smá last-minute páskaföndur hugmyndir þá koma þær hér. Var aðalega að einblína mér að blöðrum í þetta skipti. Læt held ég bara myndirnar tala fyrir sig að mestu. Hægt að búa til súkkulaði skálar (eggjabikar) með því að dýfa blöðrunni í bráðnað súkkulaði og setja síðan smá súkkulaði poll á bökunarpappír til að búa til fótinn.
Eins og sumir vita kannski þá brotnaði skjárinn á símanum mínum Nexus 4... mikil gleði enda kostar að laga það liggur við eins og nýr sími bara. Þannig þá fór ég að pæla hvort að ég gæti ekki bara lagað þetta sjálf. Eftir nokkur Youtube myndbönd þá var ég sannfærð að þetta væri ekkert mál enda hafi ég nú áður brotist inn í plast-rafmagnsrakvél og þetta væri örugglega léttara en það haha (Hallgerður/Rakel vitið hvað ég tala um). Þannig að það endaði með að það var pantað frá útlandinu nýjan skjá og viku seinna eða svo var hann kominn til landsins. Skjárinn var veeel pakkaður inn, sem betur fer, hefði verið mjög fúlt ef hann hefði komið brotinn. Hérna sést þá minn fallegi brotni gsm og nýji. Ákvað að kaupa heila framhlið í staðinn fyrir að kaupa bara skjáinn (s.s. glerið) en þá hefði ég þurft að brjóta upp brotna glerið en það er soldið vesen.
Vörurnar úr H&M home eru bæði flottar og ekki dýrar. Eina vandamálið er bara að manni langar alltaf í allt of margt. Valdi nokkrar vörur úr nokkrum flokkunum þeirra til að sýna ykkur hvað er í boði. Eina vandamálið er bara að H&M er ekki á Íslandi og maður er ekki beint að fara flytja á milli landa brothætta hluti en á meðan má maður skoða. Gler krukka á $9.95 (uþb. 1125 kr) eru líka með tannburstaglas með sömu áferðinni á $4.95 Postulín krukka, $14.95, hún er ca. 12 cm á þvermáli og 11 cm á hæð. Mynstrið minnir má smá á Bloomingville.
|
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|