Læt fylgja með mynd af glasinu sem á að koma í haust.
Hey vissuði að Iittala hefur ákveðið að bæta við bjórglas í Essence línuna þar sem það var svo mikil eftirspurn eftir því? Þetta verður þá eina glasið í línunni sem verður ekki með stilk sem er í sömu hæð og hinir, fyrir utan vatnsglasið. Held samt að glasið myndi frekar vera notað undir eitthvað annað á mínu heimili haha. Læt fylgja með mynd af glasinu sem á að koma í haust. Hérna sjáum við þá held ég öll glösin ef ég man rétt.
0 Comments
OYOY er frekar nýlegt merki frá Danmörku. En þeir vilja búa til vörur sem eru hagnýtar og af háum gæðum í fallegum litum og lögun. Nafnið OYOY er dregið frá OY en það kemur af því að allar danskar flugvélar síðan 1929 hafa verið merktar með þessum stöfum. Eins og þið sjáið þá einkennist þetta merki af miklum einfaldleika og fallegum mynstrum. Þessar diskamottur eru aðeins of fallegar og sniðugar.
Fín veggspjöld "posters" er góð leið til að lífga upp á veggina á heimilinu. Tók saman nokkrar sem mér finnst alveg æði. Mig langar til þess að hafa myndirnar frekar látlausar þannig þær draga ekki allt of mikla athygli að sér en eru líka mjög flott á sama tíma. Það er einmitt tilvalið að leika sér að því að púsla nokkur saman upp á vegg eða hillu.
Essence línan hjá Iittala er í algjöru uppáhaldi hjá mér. Glösin eru svo fallega hönnuð, öll með jafn langann stilk og fót þannig að það er flott jafnvægi á milli tegundanna þegar þau standa öll hlið við hlið. Línan er hönnuð af Alfredo Häberli árið 2001.
Þarf að splæsa mér í svona K bolla núna í sumar. Maður verður að vera góð við sjálfan sig stundum líka. Ekki það að ég sé það ekki nú þegar haha. Eina vandamálið er að K er oft búið þar sem margir kaupa sér þannig þar sem þau túlka það þá sem Kaffi og svo er líka T vinsælt fyrir Te.
Smá innlit inn í heimili hjá innanhússarkitektinum Susanna Vento. En hún á ekkert smá flott heimili og á mikið af flottum hönnunarvörum. Vildi helst sýna ykkur eldhúsið hennar og borðstofuna en það er mjög fallegur einfaldleiki sem spilar skemmtilega á milli þessarra herbergja. Það gæti samt líka bara verið af því að ég er svo veik fyrir svörtu og hvítu saman.
|
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|