Rosalegt fyrir og eftir hjá Ninu sem sér um Stylizimo bloggið. Hún er með rosalega flottan stíl og gerði nýlega svakalegar breytingar á húsi sem hún var að flytja inní. Held að myndirnar segja allt sem segja þarf.
0 Comments
Ef það eru einhverjar eldhúsvörur sem kunna að selja sig þá eru það vörurnar frá Frakkanum Nicolas Vahé, þvílík fegurð! Hef því miður ekki haft þá ánægju að kaupa eina einustu og smakka/prófa hana en það kemur örugglega að því. Vörurnar frá Nicolas eru með svo fallegar umbúðir að þær myndu gera hvert einasta eldhús áhugavert og smekklegt.
Ekki skemmir fyrir að Nicolas öðlaðist reynsluna sína á frönsku 3ja stjörnu Michelin veitingarhúsi og hefur síðan þá fengið mörg frábær tækifæri með fólki sem skarar frammúr í sínu fagi. Þannig með alla þessa visku ákvað hann árið 2007 að stofna sitt eigið merki þar sem hann hafði góðan skilning á því hvað fólki fannst gott. Og greininlega flott líka. Þetta grafíska útlit heillar mig mjög, stórir stafir og tölur. Skelli inn nokkrum myndum til að gefa ykkur hugmyndir af vörunum hans. En hann er bæði að selja matarvörur og svo einnig búsáhöld og fylgihluti. Einnig mæli ég með að skoða bæklinginn hans fyrir Vor/Sumar 2015 en þar eru girnilegar uppskriftir. Mér finnst mjóar svartar línur á hvítum bakgrunni vera rosalega stílhreint, þetta rúðustrika look. Maður þarf samt að passa að þetta minni mann ekki of mikið á stærðfræðitímana í denn.
Svona rúður passa fullkomlega inn í eldhúsið eða svefnherbergið þar sem þær gefa svo hreint yfirbragð. Já sælir hvað mánuður líður fljótt... sérstaklega þegar það er nóg að gera.
Vildi deila með ykkur myndir af flottum eldhúsum sem eru búin að vera að safnast saman á pinterest hjá mér. Er mikið fyrir þetta hvíta útlit með blöndu af svörtu og náttúrulegum við. Svo er líka mikilvægt að poppa uppá eldhúsið með smá lit og þá sérstaklega með því að nota plöntur (kryddplöntur, blóm,..). Hope you like :) Rakst á þessa flottu og litlu íbúð í Gautaborg, Svíþjóð. Íbúðin stækkar helling með því að hafa veggina og gólfin hvít. Smeg ísskápurinn kemur mjög vel út í eldhúsinu sem er bjart og stílhreint. Myndi segja að eldhúsið væri flottasta herbergið og kryddplönturnar lífga mikið uppá rýmið.
Fór í smá göngutúr í gær með Gulla niður Laugaveginn. Endaði með því að ég fór heim með þessi fallegu glös og viskustykki frá Fakó Verslun. Þessi glös eru alveg pörfect fyrir boozt og svala sumardrykki, þótt að sumarið sé nú eiginlega búið.
|
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|