Mér persónulega finnst teppin vera algjör snilld þar sem núna hægt að fá alveg einstök teppi og ódýr. Þau geta verið allt frá því að vera eitthvað abtract listaverk yfir í teiknimynd eða bara mjög einföld form. Sturtuhengin eru samt líka mjög krúttleg og sum hver fyndin ef manni langar í þannig. Tók saman nokkrar myndir fyrir ykkur en annars mæli ég með að skoða þessa síðu alveg fram og aftur og finna þann listamann sem heillar þig.
Society6 er alltaf að bæta við sig helling af auka hlutum sem hægt er að panta frá síðunni þeirra. Síðast talaði ég bara um kodda og einnig listaverk sem hægt var að fá sér. Síðan þá hafa þeir bætt við fyrir heimilið sturtuhengi, klukkur og teppi er það nýjasta frá þeim. Þeir voru bara að tilkynna teppin í dag þannig að margir listamenn hafa ekki tekið það strax upp á síðunni sinni að selja teppin en eru þó væntanleg síðar geri ég ráð fyrir.
Mér persónulega finnst teppin vera algjör snilld þar sem núna hægt að fá alveg einstök teppi og ódýr. Þau geta verið allt frá því að vera eitthvað abtract listaverk yfir í teiknimynd eða bara mjög einföld form. Sturtuhengin eru samt líka mjög krúttleg og sum hver fyndin ef manni langar í þannig. Tók saman nokkrar myndir fyrir ykkur en annars mæli ég með að skoða þessa síðu alveg fram og aftur og finna þann listamann sem heillar þig.
0 Comments
Úff langt síðan síðast! Allt of mikið að gera í skólanum og liggur við enginn tími til þess að henda í eitt stykki blogg... gengur ekki lengur.
Mig langaði til þess að sýna ykkur Instagrammara sem mér finnst gaman að fylgjast með þar sem hún er með svaka flottan stíl og er sjálf bloggari frá Hollandi. Hún heitir Roos-Anne en kallar sig ModeRosa á Instagram hún er mjög hrifin af svörtu og hvítu (eins og sumir) ásamt því að fylgjast vel með hvað sé í tísku hverju sinni. Hún heldur einnig uppi blogginu ModeRosa þar sem hún skrifar um tísku og lífstíl. Nokkrar myndir af síðunni hennar: Þarf maður ekki að eiga nokkrar góðar kápur/jakka svona til skiptanna? tjahh ég á amk bara einn sem fer að detta í sundur held ég bráðum og langar mig svo í nýjan. Ég virðist þó ekki finna þann rétta og held því leitinni áfram, held ég þurfi samt að bíða aðeins þar til það fer að hausta aftur þar sem flestar búðir eru komin með sumarfötin amk ef ég ætla að fá mér einhverja hlýja .
Hérna eru nokkrar myndir tíndar saman af flottum kápum: Eins og svo margir á ég Nike Free skó og langar mig svo mikið í aðra! Þeir eru svo þægilegir og svo gott að getað hent sér í þá. Mig hefur lengi langað til að búa til mína eigin og það er líka svo gaman að leika sér inná síðunni þeirra. Mínir sem ég á núna eru mjög áberandi appelsínugulir og væri ég til í að eiga eitt par sem er svona meira casual. Hendi inn nokkrum skóm sem ég bjó til svona til að sýna hvað hægt er að gera, ég er samt frekar einhæf í litavali en ég mæli klárlega með að skoða þetta forrit hjá þeim! Enjoy Nike Free 5.0 - $135 Nike Free iD Shield 5.0 - $150
|
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|