Topparnir hjá þeim er hægt að klæða upp og niður við hvaða tilefni sem er við skyrtu, bol, hlýrabol...
Datt einhvernveginn inn á Urban Outfitters síðuna í dag og vá hvað mig langar í sumar aftur þegar ég sé allar þessa hlýrabola og kjóla myndir. Varð svaka hrifin af þessu pikka-bú-grafísku looki á síðunni þeirra. Er svo flott að hafa eitthvað svona einfalt og stílhreint sem að gerir heildar útlitið alveg einstakt.
Topparnir hjá þeim er hægt að klæða upp og niður við hvaða tilefni sem er við skyrtu, bol, hlýrabol...
0 Comments
Æjj þetta eru svona dagar þar sem maður vill bara vera uppí rúmmi að gera ekki neitt nema hlusta á rigninguna vera undir kosý teppi og sötra á kakó... jafnvel splæsa í kertaljós og stóra peysu.
Svo ég sá þessa peysu á Vero Moda facebook síðunni og ég kolféll fyrir henni. Hef lengi langað í svona oversized peysu sem er mjög kósý. Efnið í peysunni er svo mjúkt! Hef ekki farið úr henni síðan ég keypti hana í dag haha aðeins of ljúft líf. Hún kom líka í ljósgráu en mig langaði meira í svarta. Er svo hrifin af stórum peysum og svo skinny buxum eða leggins við.
Hættulegt að fara skoða H&M þegar maður er fastur á klakanum. Núna eru A/W fötin að koma í verslanir og margt ekkert smá flott að mínu mati. Tók saman nokkur föt sem að heilluðu mig:
Vantar manni ekki alltaf nýja skó? Langar svo í nýja skó sem geta verið svona bæði spari og sumarlegir á sama tíma. Fór því að surfa netið og sjá svona hvað væri í boði. Hérna eru nokkrar týpur sem heilluðu mig, finnst þær allar vera frekar klassískar í útliti og stíl: Black Ankle Strap Open Toe Heels £29.99 - New Look Black Chunky Chain Ankle Strap Sandals £22.99 - New Look
Úff langt síðan síðast! Allt of mikið að gera í skólanum og liggur við enginn tími til þess að henda í eitt stykki blogg... gengur ekki lengur.
Mig langaði til þess að sýna ykkur Instagrammara sem mér finnst gaman að fylgjast með þar sem hún er með svaka flottan stíl og er sjálf bloggari frá Hollandi. Hún heitir Roos-Anne en kallar sig ModeRosa á Instagram hún er mjög hrifin af svörtu og hvítu (eins og sumir) ásamt því að fylgjast vel með hvað sé í tísku hverju sinni. Hún heldur einnig uppi blogginu ModeRosa þar sem hún skrifar um tísku og lífstíl. Nokkrar myndir af síðunni hennar: |
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|