Þessi nýja lína verður að mér skillst kynnt föstudaginn 6. mars í Kringlunni og Smáralind, event hér.
Vá, var að skoða bæklinginn fyrir væntanleg húsgögn í Söstene Grene núna rétt í þessu og heillaðist alveg. Maður sér alveg hvaðan þau fá innblásturinn en þetta svipar til margs sem hefur verið í tísku núna undanfarið. Þetta er svona hrátt iðnaðar útlit sem er samt stílhreint og fallegt.
Þessi nýja lína verður að mér skillst kynnt föstudaginn 6. mars í Kringlunni og Smáralind, event hér.
0 Comments
Rakst á þessa flottu og litlu íbúð í Gautaborg, Svíþjóð. Íbúðin stækkar helling með því að hafa veggina og gólfin hvít. Smeg ísskápurinn kemur mjög vel út í eldhúsinu sem er bjart og stílhreint. Myndi segja að eldhúsið væri flottasta herbergið og kryddplönturnar lífga mikið uppá rýmið.
Í dag birti Ferm Living myndir af vörunum sínum fyrir vor/sumar 2015. Við fyrstu sýn virðist línan einkennast af ljósum litum. Við sjáum að blái liturinn er áberandi hjá þeim og mikið blandað saman við gráan.
Núna er rétti tíminn til þess að lífga aðeins upp á heimilið með grænum plöntum þar sem það er orðið svo grátt úti og kalt. Aðeins of snemmt fyrir jólaskrautið að mínu mati og því er fullkomið að finna gamlar krukkur eða draga fram flotta vasa og potta.
Safnast alltaf upp flottar myndir á Pinterest þannig ákvað að deila nokkrum með ykkur af mismunandi baðherbergjum. Svo margt flott sem hægt er að gera inná baðherberginu en ég er hrifnust af einfaldleika og litlum smáatriðum. Einnig finnst mér plöntur geta gert margt fyrir lítil baðherbergi. Eigið örugglega eftir að sjá eitthvað mynstur sérstaklega í black and white stílnum, hann er svo klassískur.
Þannig ég ákvað að skella mér á forútsölu Epal í gær mætti rétt fyrir opnun en greinilega á réttum tíma því að allt í einu var komin ekkert smá löng röð inn í búðina. Þannig ég náði að "hlaupa" inn og skoða svona allt ca áður en það kláraðist. Það var alveg greinilegt að Iittala var mjög vinsælur staður til að kíkja á. Ég náði einmitt að næla mér í Alvar Aalto kertastjaka í mínum uppáhaldslit Light Blue og svo Mariskál 12 cm í Water Green. Einnig keypti ég mér hvítan Krumma eftir Ingibjörgu Hönnu.
|
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|