Þau senda um allan heim en eru staðsett í Svíþjóð. Verðið er annað hvort 650 eða 950 sek.kr. fer eftir hve mikið upplag er á hverri mynd.
Hvaða borg heillar þig? Sjálf finnst mér Berlín og París klassísk.
Ég rakst á þessi veggspjöld frá Studio Esinam fyrir skömmu og fannst þau frekar flott. Þau sýna arkitektúr mismunandi bygginga frá ýmsum borgum í heiminum. Studio Esinam velja oftast gamlar og nýjar byggingar og segja þannig sögu staðarins í gegnum arkitektúr. Gaman er að sjá hversu ítarleg teikningarnar eru og hve mikið er lagt í þær.
Þau senda um allan heim en eru staðsett í Svíþjóð. Verðið er annað hvort 650 eða 950 sek.kr. fer eftir hve mikið upplag er á hverri mynd. Hvaða borg heillar þig? Sjálf finnst mér Berlín og París klassísk.
0 Comments
Hey vissuði að Iittala hefur ákveðið að bæta við bjórglas í Essence línuna þar sem það var svo mikil eftirspurn eftir því? Þetta verður þá eina glasið í línunni sem verður ekki með stilk sem er í sömu hæð og hinir, fyrir utan vatnsglasið. Held samt að glasið myndi frekar vera notað undir eitthvað annað á mínu heimili haha. Læt fylgja með mynd af glasinu sem á að koma í haust. Hérna sjáum við þá held ég öll glösin ef ég man rétt.
Chair One eftir Konstantin Grcic finnst mér vera alveg sérstaklega fallegur stóll, þvílík formfegurð. Er það ekki alveg örugglega orð haha jújú. Öll þessi horn á honum eru svo skemmtileg og einkennandi fyrir hann. Væri alveg til í að eiga eitt stykki af þessum stól bara svona til þess að eiga hann og setja á fallegann stað bara fyrir stólinn. Hann væri meira svona bara eins og einhver skúlptúr heldur en stóll. Þjóðverjarnir kunna þetta alveg. Konstantin segir þetta um stólinn sinn sem var hannaður árið 2004:
Fín veggspjöld "posters" er góð leið til að lífga upp á veggina á heimilinu. Tók saman nokkrar sem mér finnst alveg æði. Mig langar til þess að hafa myndirnar frekar látlausar þannig þær draga ekki allt of mikla athygli að sér en eru líka mjög flott á sama tíma. Það er einmitt tilvalið að leika sér að því að púsla nokkur saman upp á vegg eða hillu.
Smá innlit inn í heimili hjá innanhússarkitektinum Susanna Vento. En hún á ekkert smá flott heimili og á mikið af flottum hönnunarvörum. Vildi helst sýna ykkur eldhúsið hennar og borðstofuna en það er mjög fallegur einfaldleiki sem spilar skemmtilega á milli þessarra herbergja. Það gæti samt líka bara verið af því að ég er svo veik fyrir svörtu og hvítu saman.
Sæll langt síðan síðast! Enda bara búin að vera í prófum og ekkert náð að tríta mig við blogg. Rakst á um daginn soldið áhugavert inná Urban Outfitters síðunni en ég hafði amk aldrei tekið eftir að þau eru líka með hluti fyrir heimilið. Sem sagt Apartment en þar er hægt að finna allskonar sniðugt dót og mjög flottum vörum. Þau eru með svaka úrval allt frá litlu símadóteríi og myndavélar til húsgagna. Ætla að bomba inn nokkrum hlutum sem heilluðu mig.
|
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|