Í dag birti Ferm Living myndir af vörunum sínum fyrir vor/sumar 2015. Við fyrstu sýn virðist línan einkennast af ljósum litum. Við sjáum að blái liturinn er áberandi hjá þeim og mikið blandað saman við gráan.
0 Comments
Datt einhvernveginn inn á Urban Outfitters síðuna í dag og vá hvað mig langar í sumar aftur þegar ég sé allar þessa hlýrabola og kjóla myndir. Varð svaka hrifin af þessu pikka-bú-grafísku looki á síðunni þeirra. Er svo flott að hafa eitthvað svona einfalt og stílhreint sem að gerir heildar útlitið alveg einstakt.
Topparnir hjá þeim er hægt að klæða upp og niður við hvaða tilefni sem er við skyrtu, bol, hlýrabol... Fór í smá göngutúr í gær með Gulla niður Laugaveginn. Endaði með því að ég fór heim með þessi fallegu glös og viskustykki frá Fakó Verslun. Þessi glös eru alveg pörfect fyrir boozt og svala sumardrykki, þótt að sumarið sé nú eiginlega búið.
Vantar manni ekki alltaf nýja skó? Langar svo í nýja skó sem geta verið svona bæði spari og sumarlegir á sama tíma. Fór því að surfa netið og sjá svona hvað væri í boði. Hérna eru nokkrar týpur sem heilluðu mig, finnst þær allar vera frekar klassískar í útliti og stíl: Black Ankle Strap Open Toe Heels £29.99 - New Look Black Chunky Chain Ankle Strap Sandals £22.99 - New Look
Gleðilegt sumar! Það er greinilega að koma sumar þar sem ég var akkúrat að byrja að hnerra, hver elskar ekki frjókornaofnæmi? En ég læt mig dreyma um sumar og sól á meðan ég reyni að læra...
|
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|