Ég er samt svo "picky" þegar kemur að því hvort að þessir hnífar eru með einhver gæði yfirleitt þar sem allir virðast vera að selja þessa blessuðu hnífa annað hvort á mjög lágu verði eða þá á svona verði eins og maður heldur að þeir eiga að kosta en veit samt ekki alveg 100% hvort gæðin standast verðið svo veit maður ekkert hvort að húðin flagni af stálinu og svo framvegis. Þannig að ef ég finn flotta litaða hnífa úr keramík efni væri það draumur. Svo má ekki gleyma alveg svörtu flottu (meira að neðan)...
Hver þekkir ekki til litríku hnífanna sem hafa verið að slá í gegn uppá síðkastið. Já auðvitað langar mig í þannig líka, helst alla í sitthvorum lit. Þeir sem hafa verið seldir hér á landi eru flestir frá Pure Komachi 2 en held að það séu líka einhverjir frá Taylor Eye Witness sem er ekki alveg jafn gott merki. Ég er samt svo "picky" þegar kemur að því hvort að þessir hnífar eru með einhver gæði yfirleitt þar sem allir virðast vera að selja þessa blessuðu hnífa annað hvort á mjög lágu verði eða þá á svona verði eins og maður heldur að þeir eiga að kosta en veit samt ekki alveg 100% hvort gæðin standast verðið svo veit maður ekkert hvort að húðin flagni af stálinu og svo framvegis. Þannig að ef ég finn flotta litaða hnífa úr keramík efni væri það draumur. Svo má ekki gleyma alveg svörtu flottu (meira að neðan)...
0 Comments
Ég er mjög hrifin af bláu enda uppáhaldsliturinn minn. Mér finnst litaðir veggir alveg poppa uppá herbergi þannig þegar ég málaði herbergið mitt fyrir löngu vildi ég hafa einn vegg bláann og einn svartann sem eru alveg pörfect litir fyrir hvaða herbergi sem er í húsinu að mínu mati sitt í hvoru lagi eða saman.
Það er sagt að blár litur hafi róandi áhrif og auki styrk. Svarti liturinn er sagður vera haldinn ákveðinni leyndardómi (e. mistery) og veita manni styrk en of mikið af svörtu getur verið niðurdrepandi. Svo það er kannski gott fyrir mig að vera með bláann lit í herberginu þegar maður er að stressa sig yfir próf eða eitthvað annað hehe :) Ég rakst á mjög flott DIY á Pinterest fyrir stuttu og hef ekki hætt að hugsa um það, langar svo að prófa þetta einhverntímann. Þetta á að vera mjög auðvelt og er mjög flott að mínu mati. Hvað er ég nú að babbla um jú auðvitað þennann fallega marmara-bakka sem þið sjáið hér að neðan:
Ferm Living var í dag að kynna nýjustu hlutina í úr þeirra smiðju fyrir vor/sumar 2014 og hvílík litadýrð og fegurð það var. Ég er mjög hrifin af Ferm Living en þau eru alltaf með svo áhugaverð form og litasamsetningar. Ég er veik fyrir grafískt mynstur sérstaklega svart og hvítt og þá kemur Ferm Living sterkt inn. Setti nokkrar myndir úr nýju línunni þeirra hérna fyrir neðan:
Ákvað að skella inn gömlu DIY eða á íslensku gerðu-það-sjálf/ur síðan í sumar. Verðið að afsaka gæðin á fyrstu myndinni og síðustu þar sem þær voru teknar á lélegri símamyndavél en þetta ætti að koma sér til skila. Sem sagt tók bol sem ég var svo klaufarlega búin að "skemma" með því að sulla klór á einum stað. Þar sem ég var nú þegar búin að klæja að prófa gera svona þá var enginn skaði skeður og ég prófaði bara að gera það á þessum bol. Skef 1: Láta plastpoka eða einhverskonar filmu á milli framhliðarinnar og baksins svo að það litist aðeins á einni hlið bolsins (þið auðvitað sleppið þessu ef þið viljið lita báðum megin). Mæli með því að passa hvernig undirlag þið eruð að gera þetta á því það getur skemmst ef að klór sullast á það, því gerði ég þetta á flísum. Skref 2: Blanda saman klór og smá vatn í litla skál (styrkurinn fer eftir hversu mikið þið viljið uppleysa upprunalega litinn) Hérna sjáið þið tvo bletti á miðjum bolnum og ég er einnig búin að láta plastið á milli.
Fallegt plaggat í myndaramma er svo fallegt eitt og sér en líka mörg saman uppá vegg/hillu. Stafrófið heillar mig mjög mikið og er þetta eftir RK // Design í miklu uppáhaldi: Fæst hérna
|
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|