Safnast alltaf upp flottar myndir á Pinterest þannig ákvað að deila nokkrum með ykkur af mismunandi baðherbergjum. Svo margt flott sem hægt er að gera inná baðherberginu en ég er hrifnust af einfaldleika og litlum smáatriðum. Einnig finnst mér plöntur geta gert margt fyrir lítil baðherbergi. Eigið örugglega eftir að sjá eitthvað mynstur sérstaklega í black and white stílnum, hann er svo klassískur.
1 Comment
Mæli með að kíkja á instagram hjá henni Nina Holst a.k.a. stylizimoblog en hún er mjög dugleg við að birta fallegar myndir af heimilum. Ef að instagrammið hennar er ekki nóg getið þið séð fleirri myndir á myndablogginu henna :) enjoy!
Adnet speglarnir frá GUBI eru svaka flottir og töff en líka auðvelt að gera sína eigin útgáfu af þeim. Það er ekki erfitt en það eina sem maður þarf á að halda er kringlóttann spegil, skrúfur, belti og snaga.
Vörurnar úr H&M home eru bæði flottar og ekki dýrar. Eina vandamálið er bara að manni langar alltaf í allt of margt. Valdi nokkrar vörur úr nokkrum flokkunum þeirra til að sýna ykkur hvað er í boði. Eina vandamálið er bara að H&M er ekki á Íslandi og maður er ekki beint að fara flytja á milli landa brothætta hluti en á meðan má maður skoða. Gler krukka á $9.95 (uþb. 1125 kr) eru líka með tannburstaglas með sömu áferðinni á $4.95 Postulín krukka, $14.95, hún er ca. 12 cm á þvermáli og 11 cm á hæð. Mynstrið minnir má smá á Bloomingville.
Society6 er alltaf að bæta við sig helling af auka hlutum sem hægt er að panta frá síðunni þeirra. Síðast talaði ég bara um kodda og einnig listaverk sem hægt var að fá sér. Síðan þá hafa þeir bætt við fyrir heimilið sturtuhengi, klukkur og teppi er það nýjasta frá þeim. Þeir voru bara að tilkynna teppin í dag þannig að margir listamenn hafa ekki tekið það strax upp á síðunni sinni að selja teppin en eru þó væntanleg síðar geri ég ráð fyrir.
Mér persónulega finnst teppin vera algjör snilld þar sem núna hægt að fá alveg einstök teppi og ódýr. Þau geta verið allt frá því að vera eitthvað abtract listaverk yfir í teiknimynd eða bara mjög einföld form. Sturtuhengin eru samt líka mjög krúttleg og sum hver fyndin ef manni langar í þannig. Tók saman nokkrar myndir fyrir ykkur en annars mæli ég með að skoða þessa síðu alveg fram og aftur og finna þann listamann sem heillar þig. |
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|