Ég er mjög hrifin af bláu enda uppáhaldsliturinn minn. Mér finnst litaðir veggir alveg poppa uppá herbergi þannig þegar ég málaði herbergið mitt fyrir löngu vildi ég hafa einn vegg bláann og einn svartann sem eru alveg pörfect litir fyrir hvaða herbergi sem er í húsinu að mínu mati sitt í hvoru lagi eða saman.
Það er sagt að blár litur hafi róandi áhrif og auki styrk. Svarti liturinn er sagður vera haldinn ákveðinni leyndardómi (e. mistery) og veita manni styrk en of mikið af svörtu getur verið niðurdrepandi. Svo það er kannski gott fyrir mig að vera með bláann lit í herberginu þegar maður er að stressa sig yfir próf eða eitthvað annað hehe :)

Bláir flísar eru líka mjög flottir í eldhúsið og einnig krúttlegir að utan, smá svona sólarlanda fílingur.
Læt fylgja með nokkrar myndir úr herberginu mínu svona til að sýna veggina inni hjá mér. Þetta er sem sagt þannig að það er blár/túrkís veggur hjá rúmminu mínu svo koma hvítir veggir og í hinn endann er þá sá svarti.
Þarf grl að fara taka til á bláa veggnum haha of mikið af dóti...
Þarf grl að fara taka til á bláa veggnum haha of mikið af dóti...
Ég er hrifin af að hafa hvítt á móti lit þannig ég er með hvítar hillur og til dæmis hvíta spegilinn á móti svarta veggnum. Mesta vesenið var að mála ofninn á svarta veggnum en eftir smá þolinmæði tókst það og fellur hann alveg fullkomlega inní vegginn núna. En eins og þið sjáið sést hann ekki beint neitt en hann er undir hvítu hillunni ;) |