Rosalegt fyrir og eftir hjá Ninu sem sér um Stylizimo bloggið. Hún er með rosalega flottan stíl og gerði nýlega svakalegar breytingar á húsi sem hún var að flytja inní. Held að myndirnar segja allt sem segja þarf.
0 Comments
Dagurinn í dag er frábær dagur til þess að setjast niður og föndra smá. Ég mæli með að lita egg en það er eitthvað sem allir geta gert það er bara um að gera að láta hugmyndaflugið ráða för.
Datt í hug að setja nokkrar hugmyndir fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt. En maður þarf auðvitað að byrja á því að eiga til egg til þess að skreyta. Svo það eina sem þarf að gera þar er voða auðvelt: 1. Ná í egg. 2. Gera lítil göt beggja megin með ágætlega breittum hníf eða títuprjón. 3. Blása þar til eggin eru alveg tóm. Best er að safna öllu saman í skál svo hægt sé að nota eggjahræruna. 4. Skola aðeins og þurrka. 5. Skreyta! Adnet speglarnir frá GUBI eru svaka flottir og töff en líka auðvelt að gera sína eigin útgáfu af þeim. Það er ekki erfitt en það eina sem maður þarf á að halda er kringlóttann spegil, skrúfur, belti og snaga.
Ef einhverjum vantar smá last-minute páskaföndur hugmyndir þá koma þær hér. Var aðalega að einblína mér að blöðrum í þetta skipti. Læt held ég bara myndirnar tala fyrir sig að mestu. Hægt að búa til súkkulaði skálar (eggjabikar) með því að dýfa blöðrunni í bráðnað súkkulaði og setja síðan smá súkkulaði poll á bökunarpappír til að búa til fótinn.
Eins og sumir vita kannski þá brotnaði skjárinn á símanum mínum Nexus 4... mikil gleði enda kostar að laga það liggur við eins og nýr sími bara. Þannig þá fór ég að pæla hvort að ég gæti ekki bara lagað þetta sjálf. Eftir nokkur Youtube myndbönd þá var ég sannfærð að þetta væri ekkert mál enda hafi ég nú áður brotist inn í plast-rafmagnsrakvél og þetta væri örugglega léttara en það haha (Hallgerður/Rakel vitið hvað ég tala um). Þannig að það endaði með að það var pantað frá útlandinu nýjan skjá og viku seinna eða svo var hann kominn til landsins. Skjárinn var veeel pakkaður inn, sem betur fer, hefði verið mjög fúlt ef hann hefði komið brotinn. Hérna sést þá minn fallegi brotni gsm og nýji. Ákvað að kaupa heila framhlið í staðinn fyrir að kaupa bara skjáinn (s.s. glerið) en þá hefði ég þurft að brjóta upp brotna glerið en það er soldið vesen.
Eins og svo margir á ég Nike Free skó og langar mig svo mikið í aðra! Þeir eru svo þægilegir og svo gott að getað hent sér í þá. Mig hefur lengi langað til að búa til mína eigin og það er líka svo gaman að leika sér inná síðunni þeirra. Mínir sem ég á núna eru mjög áberandi appelsínugulir og væri ég til í að eiga eitt par sem er svona meira casual. Hendi inn nokkrum skóm sem ég bjó til svona til að sýna hvað hægt er að gera, ég er samt frekar einhæf í litavali en ég mæli klárlega með að skoða þetta forrit hjá þeim! Enjoy Nike Free 5.0 - $135 Nike Free iD Shield 5.0 - $150
|
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|