Eins og sumir vita kannski þá brotnaði skjárinn á símanum mínum Nexus 4... mikil gleði enda kostar að laga það liggur við eins og nýr sími bara. Þannig þá fór ég að pæla hvort að ég gæti ekki bara lagað þetta sjálf. Eftir nokkur Youtube myndbönd þá var ég sannfærð að þetta væri ekkert mál enda hafi ég nú áður brotist inn í plast-rafmagnsrakvél og þetta væri örugglega léttara en það haha (Hallgerður/Rakel vitið hvað ég tala um).
Þannig að það endaði með að það var pantað frá útlandinu nýjan skjá og viku seinna eða svo var hann kominn til landsins.
Þannig að það endaði með að það var pantað frá útlandinu nýjan skjá og viku seinna eða svo var hann kominn til landsins.
Skjárinn var veeel pakkaður inn, sem betur fer, hefði verið mjög fúlt ef hann hefði komið brotinn. Hérna sést þá minn fallegi brotni gsm og nýji. Ákvað að kaupa heila framhlið í staðinn fyrir að kaupa bara skjáinn (s.s. glerið) en þá hefði ég þurft að brjóta upp brotna glerið en það er soldið vesen.