Rosalegt fyrir og eftir hjá Ninu sem sér um Stylizimo bloggið. Hún er með rosalega flottan stíl og gerði nýlega svakalegar breytingar á húsi sem hún var að flytja inní. Held að myndirnar segja allt sem segja þarf.
0 Comments
Mér finnst mjóar svartar línur á hvítum bakgrunni vera rosalega stílhreint, þetta rúðustrika look. Maður þarf samt að passa að þetta minni mann ekki of mikið á stærðfræðitímana í denn.
Svona rúður passa fullkomlega inn í eldhúsið eða svefnherbergið þar sem þær gefa svo hreint yfirbragð. Ég rakst á þessi veggspjöld frá Studio Esinam fyrir skömmu og fannst þau frekar flott. Þau sýna arkitektúr mismunandi bygginga frá ýmsum borgum í heiminum. Studio Esinam velja oftast gamlar og nýjar byggingar og segja þannig sögu staðarins í gegnum arkitektúr. Gaman er að sjá hversu ítarleg teikningarnar eru og hve mikið er lagt í þær.
Þau senda um allan heim en eru staðsett í Svíþjóð. Verðið er annað hvort 650 eða 950 sek.kr. fer eftir hve mikið upplag er á hverri mynd. Hvaða borg heillar þig? Sjálf finnst mér Berlín og París klassísk. Fékk þessa nýju ól á Daniel Wellington úrið mitt fyrir stuttu. Þessi tegund heitir Classic Sheffield en ég var einmitt að blogga um það um daginn. Safnast alltaf upp flottar myndir á Pinterest þannig ákvað að deila nokkrum með ykkur af mismunandi baðherbergjum. Svo margt flott sem hægt er að gera inná baðherberginu en ég er hrifnust af einfaldleika og litlum smáatriðum. Einnig finnst mér plöntur geta gert margt fyrir lítil baðherbergi. Eigið örugglega eftir að sjá eitthvað mynstur sérstaklega í black and white stílnum, hann er svo klassískur.
Var allt í einu í voða hvítum fílingi og haustlegum, kannski af því að skólinn fer að byrja bráðum...
|
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|