Adnet speglarnir frá GUBI eru svaka flottir og töff en líka auðvelt að gera sína eigin útgáfu af þeim. Það er ekki erfitt en það eina sem maður þarf á að halda er kringlóttann spegil, skrúfur, belti og snaga.
Þessi spegill er til dæmis frá IKEA og er 60 cm á þvermáli - 5.450 kr.
- Svo er bara að finna gömul belti sem hægt væri að nota eða fara í Kolaportið eða eitthvað álíka og finna ódýr.
- Spegillinn er svo bara hengdur upp á vegginn með réttri skrúfu (fer eftir vegginn) og vafið utan um hann beltinu. Þ.e. beltið heldur ekki speglinum uppi.
- Þar næst að finna annað hvort flottann snaga til að hengja beltið uppá eða hafa bara nagla.
Hérna fyrir neðan sjáið þið dæmi um spegil sem var gerður í þessum stíl: