Eins og svo margir á ég Nike Free skó og langar mig svo mikið í aðra! Þeir eru svo þægilegir og svo gott að getað hent sér í þá. Mig hefur lengi langað til að búa til mína eigin og það er líka svo gaman að leika sér inná síðunni þeirra. Mínir sem ég á núna eru mjög áberandi appelsínugulir og væri ég til í að eiga eitt par sem er svona meira casual. Hendi inn nokkrum skóm sem ég bjó til svona til að sýna hvað hægt er að gera, ég er samt frekar einhæf í litavali en ég mæli klárlega með að skoða þetta forrit hjá þeim! Enjoy
Nike Free 5.0 - $135
Nike Free iD Shield 5.0 - $150
Nike Free iD Shield 3.0 - $150
Nike Free iD 3.0 - $135
Nike Free iD 5.0 - $135
Það tekur 30 daga eða minna að búa til svona sko þannig ef þið eruð á leiðinni út er sniðugt að panta sér svona með góðum fyrirvara og já það er líka frí sending ef kostnaðurinn er meiri en $75 þannig það er bónus.