Þannig að það endaði með að það var pantað frá útlandinu nýjan skjá og viku seinna eða svo var hann kominn til landsins.
Eins og sumir vita kannski þá brotnaði skjárinn á símanum mínum Nexus 4... mikil gleði enda kostar að laga það liggur við eins og nýr sími bara. Þannig þá fór ég að pæla hvort að ég gæti ekki bara lagað þetta sjálf. Eftir nokkur Youtube myndbönd þá var ég sannfærð að þetta væri ekkert mál enda hafi ég nú áður brotist inn í plast-rafmagnsrakvél og þetta væri örugglega léttara en það haha (Hallgerður/Rakel vitið hvað ég tala um). Þannig að það endaði með að það var pantað frá útlandinu nýjan skjá og viku seinna eða svo var hann kominn til landsins. Skjárinn var veeel pakkaður inn, sem betur fer, hefði verið mjög fúlt ef hann hefði komið brotinn. Hérna sést þá minn fallegi brotni gsm og nýji. Ákvað að kaupa heila framhlið í staðinn fyrir að kaupa bara skjáinn (s.s. glerið) en þá hefði ég þurft að brjóta upp brotna glerið en það er soldið vesen. Reyndi að vera skipulögð - gott að hafa lista yfir allt sem þarf að gera og rétt tól en ég þarf að þakka frænda mínum fyrir þau. Eftir MIKIÐ basl þá komst ég loks inn í símann en þar sem ein skrúfa sem vildi bara alls ekki losna þurfti ég að bíða þangað til ég komst til gullsmiðs sem loks náði að bjarga mér. Skrúfan vildi sem sagt ekki haggast og því byrjaði að spænast upp skrúfgangurinn mér til mikillar gleði en sem betur fer reddaðist það loks. Þá var bara að færa á milli skjáa og losa alla hluti sem voru límdir niður og líma aftur. Hægra megin er gamli. Tadaaa!! Var svo ánægð þegar hann vildi fara í gang og virka fullkomlega, er svo mikið að jinxa þetta núna haha. Smá kámugur eftir átökin, núna er bara að kaupa gott hulstur. Mæli með því people. Annars laga ég hann bara fyrir ykkur ;)
3 Comments
Ninna
11/4/2014 07:28:26 am
Genius! þú ert svo mikill snillingur að það hálfa væri nóg :) ég veit allavegana hvert ég á að fara ef eitthvað hjá mér fer í mask hjá mér ;)
Reply
Kristín
11/4/2014 07:59:47 am
haha takk elskan
Reply
Harpa Mjöll
11/4/2014 07:45:20 am
Snilli! :)
Reply
Leave a Reply. |
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|