Dagurinn í dag er frábær dagur til þess að setjast niður og föndra smá. Ég mæli með að lita egg en það er eitthvað sem allir geta gert það er bara um að gera að láta hugmyndaflugið ráða för.
Datt í hug að setja nokkrar hugmyndir fyrir þá sem vilja prófa eitthvað nýtt. En maður þarf auðvitað að byrja á því að eiga til egg til þess að skreyta. Svo það eina sem þarf að gera þar er voða auðvelt:
1. Ná í egg.
2. Gera lítil göt beggja megin með ágætlega breittum hníf eða títuprjón.
3. Blása þar til eggin eru alveg tóm. Best er að safna öllu saman í skál svo hægt sé að nota eggjahræruna.
4. Skola aðeins og þurrka.
5. Skreyta!

1. Svart hvít egg - hægt að nota svarta málningu en til þess að fá sem mest smáatriði er best að nota svartann túss
2. Glimmer
3. Teip
4. Skrifa skilaboð eða ljóð jafnvel
5. Svo er hægt að hafa mjög náttúruleg egg
6. Fyrir þau ykkar sem eiga mjög þunnan álpappír sem rifnar auðveldlega þá er hægt að setja smá lím á eggið og bíða í smá stund þar til það er búið að þorna aðeins, þá lætur maður álið á og rífur varlega frá þegar límið er alveg þornað.
Og voila! þið eruð komin með fallegt egg. Ef þið viljið ferkari lýsingu sjá hér.
Og voila! þið eruð komin með fallegt egg. Ef þið viljið ferkari lýsingu sjá hér.
7. Einnota tattoo - þetta er kannski gaman fyrir krakka sem eiga Disney tattoo eða eitthvað álíka og vilja uppáhalds karakterinn sinn á egg
Jæja ég vona að þetta geti nýttst einhverjum í eggja gerðinni! Gleðilega páska!
Sjálf gerði ég 2 egg í gær í stíl nr.1 svona aðeins byrjuð að skreyta.
Sjálf gerði ég 2 egg í gær í stíl nr.1 svona aðeins byrjuð að skreyta.