Demants hliðarborð - $119
| Geomítískar skálar - $4, 15 cm (6") |
Sæll langt síðan síðast! Enda bara búin að vera í prófum og ekkert náð að tríta mig við blogg. Rakst á um daginn soldið áhugavert inná Urban Outfitters síðunni en ég hafði amk aldrei tekið eftir að þau eru líka með hluti fyrir heimilið. Sem sagt Apartment en þar er hægt að finna allskonar sniðugt dót og mjög flottum vörum. Þau eru með svaka úrval allt frá litlu símadóteríi og myndavélar til húsgagna. Ætla að bomba inn nokkrum hlutum sem heilluðu mig.
0 Comments
Society6 er alltaf að bæta við sig helling af auka hlutum sem hægt er að panta frá síðunni þeirra. Síðast talaði ég bara um kodda og einnig listaverk sem hægt var að fá sér. Síðan þá hafa þeir bætt við fyrir heimilið sturtuhengi, klukkur og teppi er það nýjasta frá þeim. Þeir voru bara að tilkynna teppin í dag þannig að margir listamenn hafa ekki tekið það strax upp á síðunni sinni að selja teppin en eru þó væntanleg síðar geri ég ráð fyrir.
Mér persónulega finnst teppin vera algjör snilld þar sem núna hægt að fá alveg einstök teppi og ódýr. Þau geta verið allt frá því að vera eitthvað abtract listaverk yfir í teiknimynd eða bara mjög einföld form. Sturtuhengin eru samt líka mjög krúttleg og sum hver fyndin ef manni langar í þannig. Tók saman nokkrar myndir fyrir ykkur en annars mæli ég með að skoða þessa síðu alveg fram og aftur og finna þann listamann sem heillar þig. Eins og svo margir á ég Nike Free skó og langar mig svo mikið í aðra! Þeir eru svo þægilegir og svo gott að getað hent sér í þá. Mig hefur lengi langað til að búa til mína eigin og það er líka svo gaman að leika sér inná síðunni þeirra. Mínir sem ég á núna eru mjög áberandi appelsínugulir og væri ég til í að eiga eitt par sem er svona meira casual. Hendi inn nokkrum skóm sem ég bjó til svona til að sýna hvað hægt er að gera, ég er samt frekar einhæf í litavali en ég mæli klárlega með að skoða þetta forrit hjá þeim! Enjoy Nike Free 5.0 - $135 Nike Free iD Shield 5.0 - $150
Ég kolféll fyrir litnum light blue fyrir löngu frá Iittala en síðan þá hef ég keypt mér einn vasa frá þeim og fengið Mariskál frá þeim í þeirri lit. Skálina fékk ég frá Gulla í afmælisgjöf. Síðan rákumst við tvö á flöskuna í Rúmfatalagerinum ekki fyrir löngu síðan og var ekkert annað til boða en að skella sér á hana þar sem hún var á kjaraverði. Boxin eru frá Ferm Living en ég gaf sjálfum mér þau í jólagjöf á enn eftir að finna notagildi fyrir þau en það kemur allt í ljós seinna. Voru bara of flott til að kaupa ekki. Hver er ekki að dreyma um sumar og sól akkrúat núna? Ég get amk ekki beðið. Maður fékk svona smá tilfinningu hvernig sumarið er vegna sólarinnar en þetta er víst bara gluggaveður.
Þá fer maður að skoða bikiní og hver önnur koma til greina en Triangl bikiníin frá Ástralíu sem allir eru að hrósa og tala um. Þau eru gerð úr neoprene en það er sama efni og notað er í blautbúningum. Neoprene er þykkt og teygist ekki mikið á því þannig að það er mikilvægt að velja stærðina vel þau eiga það til að vera í smærri stærðinni skilst mér. Það er eiginlega þess vegna sem ég er ekki búin að næla mér í eitt stykki en það kemur að því + það að ég get ekki ákveðið mig hvað er flottast. Ég er frekar einhæf í litavali eins og sést eehhemmm... en það eru helling af litum til! Held ég sé að hallast að Santa Rosa Splash eftir að hafa verið að skoða milljón myndir af Triangl. Vá hvað tíminn líður hratt! Búið að vera svo mikið að gera að ég hef ekki komist í að blogga en hér kemur eitt rjúkandi heitt. Mér finnst svona demanta víra mynstur mjög flott, gefur smá svona iðnaðartilfinningu. Mest megnis eru þetta ljósin sem ég er hrifin af en það er margt annað sniðugt líka til og sumt sem hægt er að búa til sjálf/ur. En ég læt bara myndaflóðið byrja: Þessi ljósakróna er frá Bloomingville hann kemur bæði í svörtu og kopar (55x35cm) V: Skemmtilegt DIY þar sem notað er svart teip til þess að búa til mynstur fyrir höfuðgafl - Mjög nett
H: Hérna eru sogrör og blómavír notuð til að fá þessa flottu útkomu, meira hér. |
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|