Hver er ekki að dreyma um sumar og sól akkrúat núna? Ég get amk ekki beðið. Maður fékk svona smá tilfinningu hvernig sumarið er vegna sólarinnar en þetta er víst bara gluggaveður.
Þá fer maður að skoða bikiní og hver önnur koma til greina en Triangl bikiníin frá Ástralíu sem allir eru að hrósa og tala um. Þau eru gerð úr neoprene en það er sama efni og notað er í blautbúningum. Neoprene er þykkt og teygist ekki mikið á því þannig að það er mikilvægt að velja stærðina vel þau eiga það til að vera í smærri stærðinni skilst mér. Það er eiginlega þess vegna sem ég er ekki búin að næla mér í eitt stykki en það kemur að því + það að ég get ekki ákveðið mig hvað er flottast.
Ég er frekar einhæf í litavali eins og sést eehhemmm... en það eru helling af litum til! Held ég sé að hallast að Santa Rosa Splash eftir að hafa verið að skoða milljón myndir af Triangl.

Voðalega er ég hvít í samanburði við allar þessar myndir...
Núna má sumarið koma helst í gær...