Þótt að nýrri tegurndir eru líka mjög töff :)
Setti saman nokkrar myndir af fallegum örnum, sjáið hvað viðakubbarnir gera mikið fyrir heildar útlitið
(haha okey arin er ekki léttasta orð til þess að beygja en held ég hafi samt staðið mig ágætlega)
Ég hef alltaf verið hrifin af örnum er eitthvað svo kósy við stemmninguna sem myndast í herberginu. Kemur smá svona gamaldags fílingur og svo eru viðarkubbarnar líka svo fallegir þegar þeim er stillt upp. Sumum finnst þetta kannski smá jólalegt að hafa kveikt á arninum og finna lyktina en mér finnst aðalega þetta gamaldags hráa útlit svo flott.
Þótt að nýrri tegurndir eru líka mjög töff :) Setti saman nokkrar myndir af fallegum örnum, sjáið hvað viðakubbarnir gera mikið fyrir heildar útlitið (haha okey arin er ekki léttasta orð til þess að beygja en held ég hafi samt staðið mig ágætlega)
0 Comments
Núna er rétti tíminn til þess að lífga aðeins upp á heimilið með grænum plöntum þar sem það er orðið svo grátt úti og kalt. Aðeins of snemmt fyrir jólaskrautið að mínu mati og því er fullkomið að finna gamlar krukkur eða draga fram flotta vasa og potta.
Datt einhvernveginn inn á Urban Outfitters síðuna í dag og vá hvað mig langar í sumar aftur þegar ég sé allar þessa hlýrabola og kjóla myndir. Varð svaka hrifin af þessu pikka-bú-grafísku looki á síðunni þeirra. Er svo flott að hafa eitthvað svona einfalt og stílhreint sem að gerir heildar útlitið alveg einstakt.
Topparnir hjá þeim er hægt að klæða upp og niður við hvaða tilefni sem er við skyrtu, bol, hlýrabol... Fékk þessa nýju ól á Daniel Wellington úrið mitt fyrir stuttu. Þessi tegund heitir Classic Sheffield en ég var einmitt að blogga um það um daginn. Safnast alltaf upp flottar myndir á Pinterest þannig ákvað að deila nokkrum með ykkur af mismunandi baðherbergjum. Svo margt flott sem hægt er að gera inná baðherberginu en ég er hrifnust af einfaldleika og litlum smáatriðum. Einnig finnst mér plöntur geta gert margt fyrir lítil baðherbergi. Eigið örugglega eftir að sjá eitthvað mynstur sérstaklega í black and white stílnum, hann er svo klassískur.
Eins og flestir vita hafaDaniel Wellington úrin verið mjög vinsæl upp á síðkastið. Þannig ég var ekki sú eina sem féll fyrir þessum fallegu úrum. Úrin eru mjög stílhrein og classísk í útliti eins og þið sjáið. Ég var svo heppin að ég gat sett þetta úr á óskalistann minn fyrir afmælisgjöf en ég var hrifnust af Classic Glasgow týpunni. Einnig ákvað ég að fá mér rósagull skífuna í stað silfur en það var samt mjög erfitt val þar sem ég er oftast silfur manneskja.
|
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|