Rakst á þessa flottu og litlu íbúð í Gautaborg, Svíþjóð. Íbúðin stækkar helling með því að hafa veggina og gólfin hvít. Smeg ísskápurinn kemur mjög vel út í eldhúsinu sem er bjart og stílhreint. Myndi segja að eldhúsið væri flottasta herbergið og kryddplönturnar lífga mikið uppá rýmið.
0 Comments
Í dag birti Ferm Living myndir af vörunum sínum fyrir vor/sumar 2015. Við fyrstu sýn virðist línan einkennast af ljósum litum. Við sjáum að blái liturinn er áberandi hjá þeim og mikið blandað saman við gráan.
Masters Chair er hannaður af Philippe Starck árið 2009 en hann sameinar fallegu línurnar frá þrem þekktum stólum:
- Sjöuna eftir Arne Jacobsen - Tulip hægindastólinn eftir Eero Saarinen - Eiffel stólinn eftir Charles Eames Ég rakst á þessi veggspjöld frá Studio Esinam fyrir skömmu og fannst þau frekar flott. Þau sýna arkitektúr mismunandi bygginga frá ýmsum borgum í heiminum. Studio Esinam velja oftast gamlar og nýjar byggingar og segja þannig sögu staðarins í gegnum arkitektúr. Gaman er að sjá hversu ítarleg teikningarnar eru og hve mikið er lagt í þær.
Þau senda um allan heim en eru staðsett í Svíþjóð. Verðið er annað hvort 650 eða 950 sek.kr. fer eftir hve mikið upplag er á hverri mynd. Hvaða borg heillar þig? Sjálf finnst mér Berlín og París klassísk. Í dag er eitt ár frá fyrstu færslunni minni. Vona að einhverjir hafi haft gaman af lestrinum a.m.k. fannst mér gaman að skrifa niður það sem mér datt í hug. Þannig ég segi bara: Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir árið sem er liðið! Vona að 2015 verði snilldin ein hjá öllum. Finnst leiðinlegt hvað ég náði ekkert að blogga neitt í desember þar sem ég var í prófum og svo klukkustund eftir seinasta prófið fór ég strax að vinna. Þannig lítill tími gafst í að setjast niður og slaka aðeins á. Reyni að koma aftur sterk inn 2015. Takk fyrir að lesa! - Kristín Vildi taka saman nokkrar íslenskar vörur sem hægt væri að gera í jólagjöf. Eigum mikið af hæfileikaríkum hönnuðum og þetta er bara brota brot... :)
Gerði bara stuttann lista þar sem maður hefur ekki mikinn tíma þessa dagana í blogg og verður líklegast ekkert mikið þangað til nær dregur jóla vegna prófa. |
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|