Eins og flestir vita hafaDaniel Wellington úrin verið mjög vinsæl upp á síðkastið. Þannig ég var ekki sú eina sem féll fyrir þessum fallegu úrum. Úrin eru mjög stílhrein og classísk í útliti eins og þið sjáið. Ég var svo heppin að ég gat sett þetta úr á óskalistann minn fyrir afmælisgjöf en ég var hrifnust af Classic Glasgow týpunni. Einnig ákvað ég að fá mér rósagull skífuna í stað silfur en það var samt mjög erfitt val þar sem ég er oftast silfur manneskja.
Annað sem er svo sniðugt við þessi úr er að það er ekkert mál að skipta um ól, það fylgir með svona lítill pinni þannig hægt er að losa ólina frá. Þannig næst er bara að fá sér aðra ól við úrið, ætli ég fái mér ekki svart leður. Hægt er að kaupa ólarnar ein og sér.