Essence línan hjá Iittala er í algjöru uppáhaldi hjá mér. Glösin eru svo fallega hönnuð, öll með jafn langann stilk og fót þannig að það er flott jafnvægi á milli tegundanna þegar þau standa öll hlið við hlið. Línan er hönnuð af Alfredo Häberli árið 2001. Ég er svo heppin að eiga nú þegar 4 stykki af hvítvíns og 4 stykki af rauðvínsglösunum. En ég fékk þau í afmælisgjöf frá frábæru liði í fyrra. Planið er að safna fyrir fleiri núna í sumar og fá sér jafnvel Kastehelmi kertastjaka en maður veit bara ekki í hvaða lit. Hef alltaf verið veik fyrir ljósbláa litnum en jarðlitirnir eru líka mjög flottir (sand, rain og grey). Ég veit að karaflan á myndinni fyrir ofan er ekki úr Essence línunni en mér finnst hún bara passa miklu betur við.
2 Comments
Romeo
15/6/2014 08:53:31 am
Skemmtilegt blogg elskan mín, Við erum að safna Iittala í búið - klárt mál ;)
Reply
Julia?
15/6/2014 09:08:01 am
haha erum þetta iittala fólk :)
Reply
Leave a Reply. |
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|