Svo ég sá þessa peysu á Vero Moda facebook síðunni og ég kolféll fyrir henni. Hef lengi langað í svona oversized peysu sem er mjög kósý. Efnið í peysunni er svo mjúkt! Hef ekki farið úr henni síðan ég keypti hana í dag haha aðeins of ljúft líf. Hún kom líka í ljósgráu en mig langaði meira í svarta. Er svo hrifin af stórum peysum og svo skinny buxum eða leggins við.
Þessi á eftir að vera mikið notuð í haust og í vetur.