Fór í smá göngutúr í gær með Gulla niður Laugaveginn. Endaði með því að ég fór heim með þessi fallegu glös og viskustykki frá Fakó Verslun. Þessi glös eru alveg pörfect fyrir boozt og svala sumardrykki, þótt að sumarið sé nú eiginlega búið.
Fannst liturinn á viskustykkinu svo fallegur, sést kannski ekki vel á myndum en hann er alveg svona neon appelsínubleikur.
Eru þau ekki falleg? Og verðið skaðar ekki heldur því stykkið var á 1.150 kr. House Doctor er alveg með þetta.