Vörurnar úr H&M home eru bæði flottar og ekki dýrar. Eina vandamálið er bara að manni langar alltaf í allt of margt. Valdi nokkrar vörur úr nokkrum flokkunum þeirra til að sýna ykkur hvað er í boði. Eina vandamálið er bara að H&M er ekki á Íslandi og maður er ekki beint að fara flytja á milli landa brothætta hluti en á meðan má maður skoða. Gler krukka á $9.95 (uþb. 1125 kr) eru líka með tannburstaglas með sömu áferðinni á $4.95 Postulín krukka, $14.95, hún er ca. 12 cm á þvermáli og 11 cm á hæð. Mynstrið minnir má smá á Bloomingville. Sæt kerti á $5.95 með mismunandi texta eftir lit Stílhrein sængurföt á $24.95 Sniðugt að getað snúið við til að breyta aðeins til en þessi hérna eru á $24.90 Barnadótið hjá þeim er líka einum of sætt! Þessi handklæði eru á bilinu $3.95-9.95. Mér finnst samblanda af hvítum og gráum tónum ásamt einum lit mjög flott blanda eins og sést á tvem efri myndunum. Blái liturinn kemur sterkur inn þarna og gefur manni smá svona spa fíling.
6 Comments
Ninna
7/4/2014 06:57:42 am
Það væri nú ekki leiðinlegt að hafa H&M á Íslandi ;) Doppóttu sængurfötin eru svo fín :)
Reply
Harpa Mjöll
7/4/2014 07:38:09 am
Ég græt mig reglulega í svefn, svo mikið sakna ég H&M!! :)
Reply
Helga Björt
8/4/2014 07:37:59 am
svoooooo sammála- vantar svo OFT "smá" H&M fix.... er í sama vælipakka og Harpie :-(
Reply
Leave a Reply. |
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|