Þannig ég ákvað að skella mér á forútsölu Epal í gær mætti rétt fyrir opnun en greinilega á réttum tíma því að allt í einu var komin ekkert smá löng röð inn í búðina. Þannig ég náði að "hlaupa" inn og skoða svona allt ca áður en það kláraðist. Það var alveg greinilegt að Iittala var mjög vinsælur staður til að kíkja á. Ég náði einmitt að næla mér í Alvar Aalto kertastjaka í mínum uppáhaldslit Light Blue og svo Mariskál 12 cm í Water Green. Einnig keypti ég mér hvítan Krumma eftir Ingibjörgu Hönnu.
Er auðvitað ekki beint með góðan stað núna fyrir Krumma minn og hengdi hann því bara í gluggann hjá mér í bili.
Eins og sést er ég komin með smá safn í Light Blue safnið mitt haha, held ég sé komin með nóg í bili...
Mæli með að kíkja er allskonar dót í boði fram á sunnudaginn. Svona var stemmningin í gær, er að bíða í kassaröðinni: