Rakst á þessa flottu og litlu íbúð í Gautaborg, Svíþjóð. Íbúðin stækkar helling með því að hafa veggina og gólfin hvít. Smeg ísskápurinn kemur mjög vel út í eldhúsinu sem er bjart og stílhreint. Myndi segja að eldhúsið væri flottasta herbergið og kryddplönturnar lífga mikið uppá rýmið.
Mér finnst þetta ekkert smá falleg íbúð sem er vel nýtt.