Smá innlit inn í heimili hjá innanhússarkitektinum Susanna Vento. En hún á ekkert smá flott heimili og á mikið af flottum hönnunarvörum. Vildi helst sýna ykkur eldhúsið hennar og borðstofuna en það er mjög fallegur einfaldleiki sem spilar skemmtilega á milli þessarra herbergja. Það gæti samt líka bara verið af því að ég er svo veik fyrir svörtu og hvítu saman.
0 Comments
Sæll langt síðan síðast! Enda bara búin að vera í prófum og ekkert náð að tríta mig við blogg. Rakst á um daginn soldið áhugavert inná Urban Outfitters síðunni en ég hafði amk aldrei tekið eftir að þau eru líka með hluti fyrir heimilið. Sem sagt Apartment en þar er hægt að finna allskonar sniðugt dót og mjög flottum vörum. Þau eru með svaka úrval allt frá litlu símadóteríi og myndavélar til húsgagna. Ætla að bomba inn nokkrum hlutum sem heilluðu mig.
Vörurnar úr H&M home eru bæði flottar og ekki dýrar. Eina vandamálið er bara að manni langar alltaf í allt of margt. Valdi nokkrar vörur úr nokkrum flokkunum þeirra til að sýna ykkur hvað er í boði. Eina vandamálið er bara að H&M er ekki á Íslandi og maður er ekki beint að fara flytja á milli landa brothætta hluti en á meðan má maður skoða. Gler krukka á $9.95 (uþb. 1125 kr) eru líka með tannburstaglas með sömu áferðinni á $4.95 Postulín krukka, $14.95, hún er ca. 12 cm á þvermáli og 11 cm á hæð. Mynstrið minnir má smá á Bloomingville.
Society6 er alltaf að bæta við sig helling af auka hlutum sem hægt er að panta frá síðunni þeirra. Síðast talaði ég bara um kodda og einnig listaverk sem hægt var að fá sér. Síðan þá hafa þeir bætt við fyrir heimilið sturtuhengi, klukkur og teppi er það nýjasta frá þeim. Þeir voru bara að tilkynna teppin í dag þannig að margir listamenn hafa ekki tekið það strax upp á síðunni sinni að selja teppin en eru þó væntanleg síðar geri ég ráð fyrir.
Mér persónulega finnst teppin vera algjör snilld þar sem núna hægt að fá alveg einstök teppi og ódýr. Þau geta verið allt frá því að vera eitthvað abtract listaverk yfir í teiknimynd eða bara mjög einföld form. Sturtuhengin eru samt líka mjög krúttleg og sum hver fyndin ef manni langar í þannig. Tók saman nokkrar myndir fyrir ykkur en annars mæli ég með að skoða þessa síðu alveg fram og aftur og finna þann listamann sem heillar þig. Úff langt síðan síðast! Allt of mikið að gera í skólanum og liggur við enginn tími til þess að henda í eitt stykki blogg... gengur ekki lengur.
Mig langaði til þess að sýna ykkur Instagrammara sem mér finnst gaman að fylgjast með þar sem hún er með svaka flottan stíl og er sjálf bloggari frá Hollandi. Hún heitir Roos-Anne en kallar sig ModeRosa á Instagram hún er mjög hrifin af svörtu og hvítu (eins og sumir) ásamt því að fylgjast vel með hvað sé í tísku hverju sinni. Hún heldur einnig uppi blogginu ModeRosa þar sem hún skrifar um tísku og lífstíl. Nokkrar myndir af síðunni hennar: Ég kolféll fyrir litnum light blue fyrir löngu frá Iittala en síðan þá hef ég keypt mér einn vasa frá þeim og fengið Mariskál frá þeim í þeirri lit. Skálina fékk ég frá Gulla í afmælisgjöf. Síðan rákumst við tvö á flöskuna í Rúmfatalagerinum ekki fyrir löngu síðan og var ekkert annað til boða en að skella sér á hana þar sem hún var á kjaraverði. Boxin eru frá Ferm Living en ég gaf sjálfum mér þau í jólagjöf á enn eftir að finna notagildi fyrir þau en það kemur allt í ljós seinna. Voru bara of flott til að kaupa ekki. |
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|