Smá innlit inn í heimili hjá innanhússarkitektinum Susanna Vento. En hún á ekkert smá flott heimili og á mikið af flottum hönnunarvörum. Vildi helst sýna ykkur eldhúsið hennar og borðstofuna en það er mjög fallegur einfaldleiki sem spilar skemmtilega á milli þessarra herbergja. Það gæti samt líka bara verið af því að ég er svo veik fyrir svörtu og hvítu saman.
0 Comments
Society6 er alltaf að bæta við sig helling af auka hlutum sem hægt er að panta frá síðunni þeirra. Síðast talaði ég bara um kodda og einnig listaverk sem hægt var að fá sér. Síðan þá hafa þeir bætt við fyrir heimilið sturtuhengi, klukkur og teppi er það nýjasta frá þeim. Þeir voru bara að tilkynna teppin í dag þannig að margir listamenn hafa ekki tekið það strax upp á síðunni sinni að selja teppin en eru þó væntanleg síðar geri ég ráð fyrir.
Mér persónulega finnst teppin vera algjör snilld þar sem núna hægt að fá alveg einstök teppi og ódýr. Þau geta verið allt frá því að vera eitthvað abtract listaverk yfir í teiknimynd eða bara mjög einföld form. Sturtuhengin eru samt líka mjög krúttleg og sum hver fyndin ef manni langar í þannig. Tók saman nokkrar myndir fyrir ykkur en annars mæli ég með að skoða þessa síðu alveg fram og aftur og finna þann listamann sem heillar þig. Úff langt síðan síðast! Allt of mikið að gera í skólanum og liggur við enginn tími til þess að henda í eitt stykki blogg... gengur ekki lengur.
Mig langaði til þess að sýna ykkur Instagrammara sem mér finnst gaman að fylgjast með þar sem hún er með svaka flottan stíl og er sjálf bloggari frá Hollandi. Hún heitir Roos-Anne en kallar sig ModeRosa á Instagram hún er mjög hrifin af svörtu og hvítu (eins og sumir) ásamt því að fylgjast vel með hvað sé í tísku hverju sinni. Hún heldur einnig uppi blogginu ModeRosa þar sem hún skrifar um tísku og lífstíl. Nokkrar myndir af síðunni hennar: Þarf maður ekki að eiga nokkrar góðar kápur/jakka svona til skiptanna? tjahh ég á amk bara einn sem fer að detta í sundur held ég bráðum og langar mig svo í nýjan. Ég virðist þó ekki finna þann rétta og held því leitinni áfram, held ég þurfi samt að bíða aðeins þar til það fer að hausta aftur þar sem flestar búðir eru komin með sumarfötin amk ef ég ætla að fá mér einhverja hlýja .
Hérna eru nokkrar myndir tíndar saman af flottum kápum: Ég kolféll fyrir litnum light blue fyrir löngu frá Iittala en síðan þá hef ég keypt mér einn vasa frá þeim og fengið Mariskál frá þeim í þeirri lit. Skálina fékk ég frá Gulla í afmælisgjöf. Síðan rákumst við tvö á flöskuna í Rúmfatalagerinum ekki fyrir löngu síðan og var ekkert annað til boða en að skella sér á hana þar sem hún var á kjaraverði. Boxin eru frá Ferm Living en ég gaf sjálfum mér þau í jólagjöf á enn eftir að finna notagildi fyrir þau en það kemur allt í ljós seinna. Voru bara of flott til að kaupa ekki. Vá hvað tíminn líður hratt! Búið að vera svo mikið að gera að ég hef ekki komist í að blogga en hér kemur eitt rjúkandi heitt. Mér finnst svona demanta víra mynstur mjög flott, gefur smá svona iðnaðartilfinningu. Mest megnis eru þetta ljósin sem ég er hrifin af en það er margt annað sniðugt líka til og sumt sem hægt er að búa til sjálf/ur. En ég læt bara myndaflóðið byrja: Þessi ljósakróna er frá Bloomingville hann kemur bæði í svörtu og kopar (55x35cm) V: Skemmtilegt DIY þar sem notað er svart teip til þess að búa til mynstur fyrir höfuðgafl - Mjög nett
H: Hérna eru sogrör og blómavír notuð til að fá þessa flottu útkomu, meira hér. |
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|