Um jólin fékk ég akríl box undir skartið mitt sem tjahh var farið að verða út um allt í því gamla sem ég átti þannig mér fannst ekkert smá gaman að fá svona fínt box. Það tók smá tíma að ákveða hvað ætti að vera hvar og auðvitað komst ekkert allt fyrir í því nýja en bara svona það sem ég nota mest og komst fyrir. Boxið er frá merki sem heitir Muji sem er mjög skemmtiegt fyrirtæki mæli með að skoða síðuna þeirra. Þau eru með allskonar svona box til dæmis.
Ég er mjög hrifin af bláu enda uppáhaldsliturinn minn. Mér finnst litaðir veggir alveg poppa uppá herbergi þannig þegar ég málaði herbergið mitt fyrir löngu vildi ég hafa einn vegg bláann og einn svartann sem eru alveg pörfect litir fyrir hvaða herbergi sem er í húsinu að mínu mati sitt í hvoru lagi eða saman.
Það er sagt að blár litur hafi róandi áhrif og auki styrk. Svarti liturinn er sagður vera haldinn ákveðinni leyndardómi (e. mistery) og veita manni styrk en of mikið af svörtu getur verið niðurdrepandi. Svo það er kannski gott fyrir mig að vera með bláann lit í herberginu þegar maður er að stressa sig yfir próf eða eitthvað annað hehe :) |
Kristín Óskars- 1992 - The details are not the details. They make the design. Archives
April 2015
Categories
All
|