Jæja hefst hin árlega undirbúningur fyrir skólann. Svo sem fínt að komast í rútínu aftur þótt að það muni taka smá tíma að vakna snemma á morgnana aftur haha. Mér finnst alltaf jafn gaman að fara í Söstrene Grene til að finna aðeins öðruvísi skóladót. Finna eitthvað smá sem poppar uppá þessar venjulegu bækur sem maður þarf alltaf að kaupa.
Fann þessar skemmtilegu stílabækur þar og svarta mjóa tússpenna.
Ég nota alltaf blöð sem eru alveg auð til þess að skrifa á, þess vegna var ég ánægð að finna svona litlar stílabækur sem voru ekki með línur í því oftast eru þær annað hvort rúðustrikaðar eða með línum. Bara vesen að vera með línur eru alveg fyrir mann hehe.