Fyrir stuttu síðan lenti ég á síðu sem heitir society6 en þar eru helling af mismunandi listamönnum að selja verk sín bæði prentuð út á striga, boli, bolla og ég veit ekki hvað og hvað. Allavegana það er ein listakona sem heillaði mig alveg sérstaklega en hún heitir Amy Hamilton. Hún er grafískur hönnuður frá Kanada og leikur sér mjög fallega að litum og dýrum sérstaklega.
Hversu sætt?
Ljónið er í miklu uppáhaldi
Mæli með að skoða síðuna hennar. Verkin eru ekkert dýr til dæmis fyrir útprentaða mynd í stærðinni 20cmX24.5cm er verðið 17$ þ.e. 2000 þúsund kall svo kemur kannski smá sendingakostnaður ofaná.