Vá, var að skoða bæklinginn fyrir væntanleg húsgögn í Söstene Grene núna rétt í þessu og heillaðist alveg. Maður sér alveg hvaðan þau fá innblásturinn en þetta svipar til margs sem hefur verið í tísku núna undanfarið. Þetta er svona hrátt iðnaðar útlit sem er samt stílhreint og fallegt.
Þessi nýja lína verður að mér skillst kynnt föstudaginn 6. mars í Kringlunni og Smáralind, event hér.
Þessi nýja lína verður að mér skillst kynnt föstudaginn 6. mars í Kringlunni og Smáralind, event hér.
Iðnaðarljós hafa verið mikið í tísku og gefa töff útlit á hvaða herbergi sem er. Þau koma í nokkrum litum og verða sýnist mér á mjög fínu verði eða frá ca. 2000-2500 kr. (án ljósaperunnar).
Þessi spegill er einnig í bæklingnum þeirra en hann er um 40 cm í þvermáli. Hann minnir mig smá á Hay Strap Mirror þannig ef ykkur langar í þannig spegil en hafið ekki efni á því í bili þá er um að gera að splæsa í einn svona á ca. 2000 kr.
Þetta er s.s. Hay Strap Mirror sem ég var að tala um hérna að ofan.
Vírkörfur og ný púðaver.
Ný borð, ætli þessi verði jafn vinsæl og hin voru?? Þessi eru alveg kringlótt og koma í nokkrum litum og stærðum.
Eru þið jafn heilluð og ég? Verður gaman að fara að skoða þessa nýjunga.